1 athugasemd
sofa,éta,sofa,éta,sofa,éta,éta,sofa!
djammið hérna á egilsstöðum er ekki alveg að gera sig og björgunarsveitinn klúðraði brennunni og flugeldasýningunni, þannig ég er á leið norður um áramótin! vúhú! ég hlakka svo til, verður dálítið skrítið og auðvitað mun ég sakna fjölskyldunar minnar og fjölskyldusiðanna.
Matur, sitja og horfa útum stóra stofugluggan okkar á flugeldasýninguna hjá björgunarsveitinni. Horfa á áramótaskaupið saman, tala síðan um hvað áramótaskaupið var betra/verra heldur en það sem var í fyrr., horfa svo á egilsstaðabúa og fellbæinga byrja skjóta upp fara síðan í útiföt og út og pabbi verður eins og vitleysingur þegar hann byrjar að skjóta upp..svo gaman!
Ég, Sólveig, Eyrún, Heiðdís og Herdís skráðum okkur í hetjuklúbbinn annan í jólum þegar við löbbuðum frá Hetjunni og til Egilsstaða! ferðin var fjörug, hlaup og föll og annað!
Hlakka til!
heyrnalaus kveður!
2 athugasemdir
Jólakveðjur til allra. Nennti ekki að skrifa jólakort.
Gaman að vera komin heim.
Þorláksmessa byrjaði þannig hjá mér að litla systir mín ruddist inn til mín klukkan 11 um morgunin sagði mér að drullast á lappir og út því það hefði flætt inn í kartöflugeymsluna okkar. Þannig ég fór út í rokið og inn í litla moldarkofahólinn okkar með Eyrúnu og Gullu og byrjuðum að dæla út vatni með handafli.Stuð.
Um kvöldið var okkur boðið í skötuveislu og ég get með stolti sagt að ég borðið pínu. Ekki jafn slæmt á bragðið og lyktin gefur til kynna.
Aðfangadagur... Allt gekk sinn vanagang, kirkjan var meira að segja pínulítið skemmtileg.
Nenni ekki telja gjafirnar upp oftar svo ég ætla að skrifa þetta hérna:
það sem ég fékk var:
- Kápu
- bol
- veski
- 4 geisladiska (Hafdís huld, skakkamanage, ampop og Lay low)
- tvær perlufestir
- eyrnalokka
- innrammaða bílabæn, amma mín bjó til ramman
- 2 vettlinga
- ullarsokka
- 3 bækur (vetrarborgin, fylgið okkur og herra hávær)
- Könnu
- náttkjól
- sturtusápu úr body shop
- tösku utan um tölvuna mína
- 4 myndir sem Helga systir mín gerði og rammaði inn (lokaverkefnið hennar í listaáfánga sem hún er í, ég er að rifna af stolti)
gæti vel verið að ég sé að gleyma einhverju svo látið mig bara vita.
Ég ætla láta þetta nægja og fara koma mér í rúmið. Þarf að fara snúa sólahringnum aftur til baka þetta gengur ekki.
Góða nótt
1 athugasemd
hérna
eigilega bara svona e-pillumyndir og ég veit að myndirnar eru mikið af sama fólkinu! en það er bara vegna þess að myndirnar eru teknar svona nokkurn vegin á sama klukkutímanum eða eitthvað!
takk fyrir mig!
9 athugasemdir
Engin athugasemd

Árshátíðin tókst fullkomlega:) atriðin voru öll frábær, skil samt ekki alveg þetta með batman á sviðinu og jah.. við höfðum ekki hugmynd um þetta! Ræðurnar voru skemmtilegar og pylsan í rúlluendandnum voru tónlistarmennirnir sem komu fram eftir borðhaldið! vá þetta var svooo gaman, hef sjaldan skemmt mér jafn vel. ég fór í margar margar myndatökur og ég sé fram á gjaldþrot þegar myndirnar koma.. sjiiiiittt! en ég tók líka nokkrar myndir á myndavélina mín sem var að koma aftur úr viðgerð!

við erum svo flottar!

herdísi tókst að ekki brosa, kemur á óvart!
en þetta var samt fullkomið kvöld og allt var frábært!
takk allir sem hjálpuðu okkur!
6 athugasemdir
24.nóv....ég veit ekki!
vikan.humm ég er stressuð og spennt.. hvað kemur fyrir hjá hinni seinheppnu stjórn???bahmbammbammmm
ekki það að ég hafi enga trú á okkur, alls ekki! En við erum nú búin að vera frekar seinheppin síðustu mánuði. En það reddast:)
afrek dagsins: tókst að klæða mig í upphlut alveg sjálf,eða jahh.. sólveig festi húfuna en það er bara aukaatriði, takk sólveig:)
Við erum líka orðnar æfðar í því að klæða okkur í og úr þessum blessaða búning, næstum jafn æfðar og konurnar í gamla daga! ég dáist að þessum blessuðu konum!
Eins og sést þá hef ég ekkert spennandi að segja!
skoðið bara myndir af söngsalnum á síðunni hans SvP hér
1 athugasemd